Tenglar

Auglýsing

Klukkan

...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Prufa

01. september 2007 klukkan 13:45

http://hrabbabj.blog.is :D tékk it out

Auglýsing!

23. ágúst 2007 klukkan 17:12
Mig og Damian vanntar litla krúttlega íbúð til að leigja í vetur. Við erum bara að tala um einhverja pínulitla (ca. 50 fm kannski) ekki fyrir meira en 60.000kr leigu.
Ef einhver veit um eitthvað sniðugt endilega láta okkur vita.
S: 866-8425 (hrabba) eða 8609076 (Damian)
Email:
hrabba_bj@hotmail.com eða damianksepko@hotmail.com :)

Komin heim!!!:D

07. ágúst 2007 klukkan 20:19
Jæja þá er þetta allt bara búið! enda alveg komið ágætt í bili. Þetta er búið að vera svakalegt ferðalag á mér og sumir ekkert sérlega sáttir við þennan þvæling, svona eins og Damina:* En ég er nú ekki að fara neitt á næstunni, verð bara heima og hef það gott. Interrailið var alveg svakalega skemmtilegt! Við gerðum alveg margt og mikið, t.d. fórum við í tívolíið í Kaupmannahöfn, sundlaugargarð í Róm, Disneyland í París, fórum í Quad safari á Corfu og leigðum okkur vespur þar líka:) Svo skoðuðum við alveg helling líka eins og brot úr Berlínarmúrinum og gyðingasafn í Berlín, nokkrar kirkjur hér og þar, Effel turininn, Vatíkanið og alveg heilan helling í viðbót. Það var reyndar líka bara gaman að skoða menninguna og borgirnar og löndin:)
Þetta gat líka verið ansi þreytandi þegar það komu upp ýmis vandamál og erfiðleikar:p en við vorum svo duglegar að þetta gekk bara þokkalega hjá okkur:) ég er reyndar alveg gjörsamlega á hausnum núna og á minna en engann pening:S

En núna er ég bara að fara að vinna á elliheimilinu og vera hjá Damian. Við erum líka að spá í að leigja okkur íbúð. Bara einhverja litla og krúttlega og ekki of dýra:) það verður gaman að prufa allavegana:) svo verður maður bara að byrja að læra fljótlega fyrir næsta próf. Það er alveg eins gott að byrja að rifja upp snemma svo maður komist yfir þetta allt!

Svo á ég afmæli á föstudaginn:D:D jibbí jibbí gaman gaman... en reyndar 21 árs! úfff maður er að verða gamall;) hehe nei ég segi svona....

Þá er komið að því

01. júlí 2007 klukkan 17:17
Jæja bara út á morgun!!!
Þokkalega spennt og ÞOKKALEGA STRESSUÐ!
Allavegana þá verðum við Sigrún með síðu þannig að þessi fer aftur í smá pásu.
Kíkiði inná http://sigrunoghrabba.bloggar.is :D

Hafiði það gott á klakanum og endilega fylgist með;)
Hrabba

Við viljum franskar.... og sósu og salat

25. júní 2007 klukkan 14:29
Ok kannski kominn tími á smá færslu. Afsakið bloggleysið mitt, maður er bara ekki beinnt að hanga í tölvuni svona á sumrin:pAnnars er bara hellingur að frétta. Ég er búin að fara í læknisfræðiprófið sem gekk ágætlega en ég veit samt ekkert hvar ég stend miðað við hina, það kemur bara í ljós í byrjun júlí:) Svo var júbilering í MA 16. júní og það var geðveikt gaman! Var alveg vel hress og þetta var alveg brjálað stuð. Það var svo gaman að hitta alla aftur. Seinasta laugardag var síðan reunion hjá 86’ árgangnum í Glerárskóla sem var bara snilldin eina! Þar var líka gaman að hitta alla og margir sem höfðu breyst heil mikið:) Við byrjuðum að fara í bjórkynningu í Víking, síðan fórum við á Mela þar sem við fórum meðal annars í rúbbí, höfðingjaleik, borðuðum grillmat og svo var bara djammað. Um 11 leitið (minnir mig) komum við svo í bæinn og fórum á Kaffi Ak og ég snillingurinn var ekki með veskið mitt með mér, það var nottlega bara klúður. Reyndar þegar ég var svo á leiðinni heim frá Kaffi Ak fattaði ég að einhver hafði tekið töskuna mína, ég var reyndar mjög mikið gáfumenni og skildi hana bara eftir uppá einhverju borði. Ég allavegana fékk vægt í magann og leitaði þarna útum allt! Svo ákvað ég að tékka hvort einhver hefði tekið hana og farið með hana inná klósett eða eitthvað, kemur ekki Ragna Steina elskan með töskuna mína! Þá hafði hún fundið hana inná klósetti:D en ég var bara heppin að vera ekki með veskið mitt því það hefði pottþétt verið tekið og sem betur fer var allt í töskuni þegar ég fékk hana. Hefði ekki viljað glata símanum mínum, myndavélinni og lyklunum. Svo fer bara að styttast í að ég fari í interrail!!!!! Vá bara 7 dagar, þetta er geggjað. Ég hlakka alveg geggjað til... Svona grófleg ferðaáætlun er Danmörk, Holland, Þýskaland, Tékkland, Ungverjaland, Grikkland, Ítalía og vonandi Frakkland og Spánn:) þetta gæti samt breyst því við erum ekkert stressaðar á að halda þessari ferðaáætlun. En jæja þetta er komið nó í bili, ég er búin að setja inn myndir síðan á júbileringuni og reunioninu þannig að endilega skoðið:) Kv. hrabba

???????

06. júní 2007 klukkan 21:20
Á einhver stæ 203 til að lána mér helst bara núna??? :p

Komin á klakann

30. maí 2007 klukkan 12:44
Jæja ég var nú ekki sú duglegasta að blogga á hina síðuna en það var bara of mikið að gera og of gott veður til að vera að hanga inni í tölvunni. Þetta var alveg geggjað og ég hefði ekki viljað sleppa þessu! ég fékk bara smá heimþrá fyrsta daginn og svo daginn sem að Damian fór heim annars var þetta bara stuð:) það var orðið geggjað veður þegar ég fór, alltaf í kringum 30°C:D
Ég á kannski eftir að setja inn fleyri myndir bara inná þessa síðu.

Annað sem er að frétta, mamma Damians og Stebbi voru að fá sér lítinn labrador hvolpSaklaus hann er SVO sætur!!!

Svo núna þarf ég bara að læra á fullu þangað til 13. júní. Mamma og Ingvi eru að fara 2. út í júní, fyrst í 4 daga núna næstu helgi og svo í viku 14. júní og ég þarf að passa á meðan:p Svo er bæði júbilering hjá MA og reunion hjá Glerárskóla og svo þarf maður bara að undir búa interrailið almenninlega:D ég og Sigrún ætlum að reyna að hittast fljótlega og plana allt saman:)

Annars er ég alveg broke núna, ég á ekki krónu þannig að það verður að púsla þessu öllu eitthvað saman. Mamma ætlaði reyndar að lána mér en það er svo leiðinlegt að fá endalaust lánað:S ohhhh ég þoli ekki svona:S

En jæja hafiði það gott og verið dugleg að kvitta;)

Kv. hrabba

Jæja

29. mars 2007 klukkan 18:15
Hvað segiði, 2 dagar.. er nokkuð of seint að hætta við???:p
Nei ég segi svona, ég er bara að fara yfirum af stressi...

Búin að gera mest allt, pakka því sem ég get pakkað, ná í tryggingablað, kveðja stelpurnar (nema Tinnu ég náði ekki á henni:S) og svona hitt og þetta sem þarf að gera..

Svo var ég svoleiðis böðuð í Sorbitóli, olíu og svo smúluð með vatni í vinnunni!!!! þannig var ég kvödd í Pharmarctica;) hehe en ég fór ekkert þeygjandi og hljóðlaust og náði að rennbleyta nokkra með vatni til baka:D hehe þvílík snilld! nema það er verst að ég hef ekki náð olíunni almenninlega úr hárinu á mér þannig að það er hálf ógeðslegt en ég lifi það af:Þ

En ég held að ég bloggi ekki meira áður en ég fer út þannig að bara bless:* og hafiði það gott hérna á klakanum!!!
 Svo meðan ég verð úti þá blogga ég bara á síðuna sem ég og heiða vorum að búa okkur til:) slóðin inná hana er:

heidaoghrabba.bloggar.is

Afsakið bloggleysið

24. mars 2007 klukkan 12:04
Okey ég er ekki að meika þetta! 7 dagar!!! 1 vika!!!! hólí smólí!!!! eftir viku verð ég líklega á Heathrow að bíða eftir fluginu til Möltu... vá hvað ég er stressuð... ég hef líka haft nó að hugsa um þannig að ég er ekki búin að vera mikið á netinu... en vá eruði að grínast með hvað tíminn líður hratt!!! það er svo stutt síðan það voru 60 dagar í að ég færi en núna eru þeir bara 7.....

Annars er bara gott að frétta.. það var staffadjamm í pharma seinasta laugardag og það var bara geggjað... fórum á snjósleðum uppá Grenivíkurfjall og rendum okkur á snjóþotum og ruslapokum og slöngu niður og það var svoooo gaman... maður var bara 10 ára aftur:D svo fórum við í ýmsa leiki í íþróttahúsinu og svo í svona sjálfvirkt fjós og þetta var allt magnað.. Svo um kvöldið var grillað í BRJÁLUÐU veðri.. og svo var spilað en ég bara sofnaði:p.... já ég veit léleg!

En í gær var seinasta vaktin mín í bíóinuHissa ekkert smá skrítið... takk fyrir allt stelpur mínar:*

En framundan er bara að plana allt og fá allt á hreint.. en í dag ætla ég bara að vera með Damma mínum því VÁ hvað ég á eftir að sakna hans:* mig kvíður brjálað fyrir að kveðja hann, ég á eftir að grenja úr mér augun.. ég var að hugsa um það í gærkvöldi þegar ég var að fara að sofa og ég bara táraðist... en ég vona bara að þetta verði þess virði!
Svo ef Baldvin bróðir minn að keppa í fótbolta í dag og mig langar að fara og horfa á hann:D sjá hvað hann er orðin góður eins og margir segja;)

En jæja hafiði það gott og endilega kvittiði;) love:*

Nú eruði að grínast...

11. mars 2007 klukkan 14:02

Bara 20 dagar í að ég fer út!!!! hólí smólí!!!!!!! úffff hvað ég er stressuð.... en hlakka samt líka alveg til.. Það er allavegana loksins búið að ganga frá öllum greiðslum og svona þannig að þetta er allt reddí!

Annars er allt gott að frétta, er alltaf að reyna að læra eitthvað en það er mjög erfitt... það er alltaf svo freistandi að gera eitthvað annað..
Svo á fimmtudaginn seinasta var dansýning í Grenivíkurskóla og bræður mínir voru báðir að dansa og þvílíku krúttin:D og þau voru öll æði þessar litlu dúllur Saklaus

Svo í gærkvöldi hitti ég gellurnar mínar, Heiðu, Öddu og Tinnu. Ég held að við höfum ekki hisst 4 síðan á áramótunum takk fyrir!! Við vorum líka að gefa Öddu afmælisgjöfina sína og svona:p en ég var nú ekkert sérstaklega lengi þar sem ég var með ógeðslegan hausverk! þannig að ég tók mér bara spólu og horfði ein á hana heima hjá Damian.. Svo vaknaði ég aftur upp með sama hausverk í morgun og þá ákvað ég nú að taka verkjatöflu þannig að ég er fín núna:) þetta er alveg óþolandi..

Svo er ég bara að bíða eftir að Damian vakni, hann er nú meiri svefnpurka þessi elska;* nei ég segi svona, hann er alltaf að vinna svo mikið, líka á laugardögum þannig að ég held að hann megi nú sofa á sunnudögum.

Hehe við fórum á skauta fyrir viku og vá hvað það var gaman! ég datt aldrei og ekki Damian heldur!:) en vá hvað maður varð fljótt þreyttur þegar maður er ekki í æfingu:p ég enntist allavegana ekki lengi en þetta var geggjað gaman. Mig langar líka geggjað að fara að fara í fjallið! en ég verð örugglega búin á því eftir 1 ferð.. :p

Svo er nó að gera næstu helgi, það er staffadjamm í bíóinu á föstudagskvöldinu, þá verður farið í fjallið fyrst og svoana..  og svo á laugardaginn er staffadjamm í Pharmarctica en það er allan daginn, frá hádegi og fram á kvöld. Ég held samt að ég sleppi bíódjamminu því ég er að vinna í bíóinu á föstudaginn og svo ætla ég að vera hress á laugardaginn... En því miður því þetta er örugglega seinasta staffadjammið sem verður meðan ég er enn að vinna þarna… því ég á bara 2 vaktir eftir þarna!!

 

En jæja þetta er barasta komið fínt í bili, kvittiði nú fyrir ykkur;)